Gullkorn
NÝTT
Eygló: "Veistu það, pabbi, að þú ert vinur minn en ég er ástfangin í Daða Snæ (leikskólafélagi) og við ætlum að búa saman í hjólhýsi þegar við verðum stór.
maí 2012
Í kvöldtiltektini urðu eftirfarandi samræður. Haft skal í huga að Eygló Sunna var í prinsessukjól. "mamma þegar þú talar við mig þá átt þú að segja yðar hátign." mamman sem var orðin þreytt á tiltektini "nei nú erum við að taka til og þú átt að hjálpa" Eygló "Nei prinsessur eru svo latar að þær liggja bara uppí rúmi og láta þjónustustúlkur eins og þig taka til"
mars 2012
Thelma: "Ég ætla að gúggla þetta!"
Íris: "Ertu að fara að kúka?"
mars 2012
Nokkur fleiri orð og frasar frá Írisi:
Logg = mjólk
Koggologg = kókómjólk
Súllogg = súrmjólk
Hommagaga = hamborgari
Mella = smella
Mamma mella = mamma viltu smella?
Baggamons = Bangsímon
Ágúst 2011
Þegar maður er ekki orðinn tveggja ára þá verður maður stundum að búa til sín eigin orð yfir hlutina. Íris rak upp stór augu í matvörubúðinni og kallaði "BIGGEBÚ! BIGGEBÚ!". Það reyndist vera grænn frostpinni.
Júní 2011
Í Danmerkurferð í ágúst þurfti pabbi Eyglóar oft að áminna hana um að vera ekki að kveikja ljós að óþörfu enda rafmagn óhemju dýrt þar. Þetta fór eitthvað í taugarnar á henni og hún ákvað að kvarta í Trausta afa sinn. "Pabbi var að skamma mig fyrir að eyða rafmagninu". Svo laut hún höfði og dæsti um leið og hún sagði "Þetta er nú ljóta lífið."
Pabbinn horfði á heimabankann og dæsti þegar tékkareikningurinn var að fara í mínus og sagði "Jæja, Eygló, hvað gerum við í þessu?" Án þess að hugsa sig um svaraði litla prinsessan "Skrifa það á bankann".
Maí 2011
Eygló Sunna var í Playmo og kynnti eina persónu til sögunnar sem var "rjómadiskur riddari".
Febrúar 2011
Íris og Eygló deila saman herbergi og dóti. Íris er orðin ansi ákveðin og vill leika með Eygló eða fá dótið sem hún er með. Eitt skiptið lenti þeim saman og Eygló vildi ekki láta hana fá dótið og Íris tók smá frekjukast og þá heyrist í Eygló "mamma við verðum að fá nýtt barn, barn sem gólar ekki svona mikið".
Október 2010
Það koma oft skemmtileg mismæli þegar börn syngja. Eygló var að syngja lagið djúp og breið inní herbergi um daginn, nema í staðinn fyrir setninguna djúp og breið þá söng hún, "súpa og brauð, súpa og brauð það er á sem rennur súpa og brauð"
Október 2010
Eygló var búin að drasla heldur mikið til í herberginu í dúkkuleiknum. Dúkkuföt og dót lágu um allt gólf og mamma hennar sagði að nú þyrfti aldeilis að taka til. "Nei mamma, það þarf ekkert að taka til. Ég er yndisleg móðir. Ég er draslmóðir".
Ágúst 2010
Október 2010
Það koma oft skemmtileg mismæli þegar börn syngja. Eygló var að syngja lagið djúp og breið inní herbergi um daginn, nema í staðinn fyrir setninguna djúp og breið þá söng hún, "súpa og brauð, súpa og brauð það er á sem rennur súpa og brauð"
Október 2010
Eygló var búin að drasla heldur mikið til í herberginu í dúkkuleiknum. Dúkkuföt og dót lágu um allt gólf og mamma hennar sagði að nú þyrfti aldeilis að taka til. "Nei mamma, það þarf ekkert að taka til. Ég er yndisleg móðir. Ég er draslmóðir".
Ágúst 2010
Í Danmerkurferð í ágúst þurfti pabbi Eyglóar oft að áminna hana um að vera ekki að kveikja ljós að óþörfu enda rafmagn óhemju dýrt þar. Þetta fór eitthvað í taugarnar á henni og hún ákvað að kvarta í Trausta afa sinn. "Pabbi var að skamma mig fyrir að eyða rafmagninu". Svo laut hún höfði og dæsti um leið og hún sagði "Þetta er nú ljóta lífið."
Ágúst 2010
Í einni ökuferðinni í sumar galar allt í einu Eygló Sunna "mamma, mamma ég er með náladúfu í fætinum"
Júní 2010
Við vorum að keyra í sumarsólini og hún skein beint inn um gluggan hjá Eygló þá bað hún mömmu sína að rétta sér eitthvað skuggalegt til að hengja fyrir gluggann.
Júní 2010
Leikskólakennari: Jæja Eygló, nú farið þið út að leika í smá stund.
Eygló: Já, og svo fáum við að koma aftur inn þegar við erum komin með rauðar eplakinnar og grænt hor.
Apríl 2010
Amma Eygló var að taka mynd af nöfnu sinni með gömlu filmumyndavélinni sinni. Þegar myndatakan var búin vildi Eygló Sunna fá að kíkja á afraksturinn aftan á myndavélinni, eins og hún er vön á okkar stafrænu myndavél. Amma hennar sagði að það væri ekki hægt því þetta væri svona gamaldags myndavél og hún þyrfti fyrst að fara með filmuna í framköllun. "Þú verður bara að sjá myndina næst þegar þú kemur", sagði amman. "Þú verður þá bara að saga glugga og setja gler," sagði Eygló Sunna.
Janúar 2010
"Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð, um sólina vorið svo verði ég svo góð:"
Janúar 2010
Pabbi Eyglóar var að segja henni söguna um Jóa og baunagrasið. Þegar hann sagði að Jói og mamma hans hafi verið fátæk og ekki einu sinni átt pening fyrir mat sagði Eygló.
"En, þau áttu pítur og hakk".
"Nei, þau áttu ekki einu sinni pítur og hakk heldur bara eina kú sem gaf þeim mjólk. En þau gátu ekki bara drukkið mjólk og því sagði mamma Jóa honum að fara með kúna á markaðinn og selja hana fyrir pening svo þau gætu keypt sér mat."
"Og svo fengu þau sér lasagne," skaut Eygló þá inn í.
Janúar 2010
Eygló Sunna var að syngja lagið um stafrófið og söng.
"L, M, N og einnig P
Ætli skúta standi hjá"
Desember 2009
Við fundum í tiltekt hjá okkur um daginn litla bók þar sem við höfum skrifað niður gullkorn frá Thelmu síðan hún var svona 6 ára eða svo læt þau fylgja hér með.
Nóvember 2009
Eygló reynir margt á kvöldin til að sleppa við að fara að sofa. Eitt sem hún reynir mikið er að kalla á foreldra sína til að fá vatnsglas eða pissa. Eitt kvöldið byrjar hún að kalla á pabba sinn, "pabbi ég tíndi klútnum!" pabbinn gaf sig ekki og eftir smá stund heyrðist "pabbi ég tíndi klútnum mínum!" en og aftur sat pabbinn bara fastast á meðan hún kallaði og kallaði. Síðan heyrðist eftir smá stund " Ohhh hann kemur ekki!"
Nóvember 2009
Eygló er að læra faðir vorið á kvöldin og eins og hjá mörgum börnum koma skemmtileg mismæli við lesturinn.
Í staðinn fyrir að segja "Eigi leið þú oss í freistni" kemur hjá Eygló "Eigi leið þú oss í frysti".
október 2009
Eygló Sunna var að fylgjast með þegar Íris Ósk var böðuð. Henni var litið á vatnið og fannst það eitthvað skrýtið á litinn. Mamma hennar útskýrði að það væri olía í vatninu svo Íris yrði mjúk. Þá spurði Eygló "er hún hörð?"
September 2009
Daginn sem Íris Ósk fæddist komu Eygló og Thelma að skoða systur sína á spítalanum. Eygló var nú hálffeimin við þetta allt saman fyrst og var svona að spekúlera í þessu öllu í smá tíma. Svo snéri hún sér að mömmu sinni og sagði "hvað ætlar þú svo að gera við hana?" Held að hún hafi ekki verið alveg tilbúin að taka þetta kríli með sér heim.
Ágúst 2009
Í sextugsafmæli Þóru stjúpömmu sinnar bað Eygló Sunna pabba sinn um "spritt". Þegar kallinn hváði endurtók hún "viltu gefa mér spritt í glas?" og teymdi hann af stað. Þegar stelpuhnátan leiddi pabba sinn að barnum þar sem drykkir lágu kældir í ískari hugleiddi hann hver í andsk. hefði nú verið að kenna stelpunni ný orð og ósiði. Honum til léttis benti hún á tveggja lítra Sprite flösku og hann hellti því glaður í glas handa henni. Við tók svo smá kennslustund um hvernig nafnið á drykknum er borið fram þegar hún lyfti glasinu og sagði hátt og snjallt "meira spritt pabbi!"
Ágúst 2009
Eins og oft er gert á góðviðrisdögum þá var ákveðið að fara í sund núna í vikunni. Fórum við uppá Hlaðir og ákváðum að fara í útiklefana. Sundferðin var fín í alla staði og dró svo sem ekki til tíðinda fyrr en í klefanum þegar við fórum uppúr. Þá hafði komið ein kona þar inn rétt áður en við komum uppúr, kona komin vel á aldur gekk svolítið hokin og fór rólega yfir. Hún var að klára í sturtuni þegar við komum, ég tók eftir því að Eygló varð starsýnt á hana og fylgdist með henni labba út. Þá snýr hún sér að ömmu sinni og segir "amma sástu vondu galdranornina"... Þarna vonaði ég innilega að heyrnin væri farin að gefa sig hjá gömlu konuni þar sem hún var bara rétt farin fyrir hornið, ef ekki að hún hafi að minnsta kosti góðan húmor.
Júlí 2009
Eygló Sunna var að fara að sofa og pabbi hennar segir henni að nú eigi hún að koma og bursta tennurnar. Hún var ekki alveg í rétta skapinu og hleypur frá pabba sínum og kallar "nei nei pabbi það er enginn Baríus og Kaktus í tönnunum mínum"
Júlí 2009
Máltækið að góð saga eigi aldrei að gjalda sannleikans á einkum við um veiðisögur.
Thelma var að dorga niðri á bryggju með afa sínum og Eygló fékk stöngina lánaða hjá Thelmu til að prófa. Planið var að húkka einn af fiskunum sem Thelma hafði veitt á öngulinn hjá Eygló svo lítið bæri á og hún fengi því að "veiða" fiskinn. Það plan breyttist snarlega því í fyrsta kastinu beit fiskur á og upplifun Eyglóar af því að veiða sinn fyrsta fisk varð ekta.
Eins og sannur veiðimaður skreytti Eygló Sunna söguna af veiðinni lítillega þegar hún sagði ömmu sinni frá afrekinu. Sagan hljóðaði svona: "Ég veiddi fisk í sjónum. Svo kom hákarl og át veiðistöngina hennar Thelmu. Þá kom herra Kitli og kitlaði hákarlinn. Svo setti hann púðursykur á hákarlinn og borðaði hann."
Foreldrarnir eru staðráðnir í því að fara að ráði herra Kitla og strá púðursykri á hákarlinn á næsta þorrablóti. Kannski er þá hægt að þræla honum í sig.
Júlí 2009
Eygló barði stöðugt á baðherbergisdyrnar og bað mömmu sína að opna dyrnar. Mamma svaraði "Ég er á klósettinu Eygló, talaðu við pabba þinn". Sú stutta sneri sér til pabba síns og sagði "Pabbi, viltu hjálpa mér að opna dyrnar?"
Júní 2009
Nýjasti frasinn hjá Eygló.
Þegar ég sótti hana á leikskólann í gær sögðu konurnar mér skemmtisögu af henni. Þau voru í útiveru og þar sem þetta var fyrsti leikskóladagurinn hennar eftir vikulöng veikindi héldu þær að hún væri eitthvað þreytt þar sem hún lá fram á borðið úti. Þær settust hjá henni og spurðu hana hvort að hún væri þreytt þá reis hún upp og sagði "nei kannski leiðist mér bara!"
Júní 2009
Veit stundum ekki hvernig krökkum dettur sum orð í hug. Tvennt sem við vitum ekkert hvernig er tilkomið eru eftirfarandi: Eygló teymdi mömmu sína inná bað einn daginn til að fá puff!!! Mamman þurfti að tína dágóðan slatta út úr skápunum þangað til puffið fannst, sem sagt sólarpúðrið sem mamman notar. Svo vorum við einn daginn hjá ömmu og afa á Háteignum þegar Eygló opnar frystiskápinn og bað ömmu sína um grjót!!! Hún var nú ekki lengi að finna það í frystinum hjá ömmu, en grjótið var sem sagt Sun Lolly klaki.... Blessuð börnin...
Maí 2009
Eygló elskar að horfa á myndina Litla hafmeyjan og leikur líka stundum hafmeyju í baði. En kannski það skemmtilegasta er að hún er farin að hafa eftir nokkra frasa úr myndini. Til dæmis ef hún fer í fýlu þá fer hún út í horn eða uppí sófa og tilkynnir okkur að hún sé "prinsessan af hallæri"
Apríl 2009
Eygló Sunna var í sturtu með pabba sínum og spurði hann hvort hann vildi vera kona! (af því að hann var að nota sjampó í hárið á sér).
Apríl 2009
Stundum ruglast maður aðeins þegar maður er 2 ára að æfa sig að tala. Einn sunnudagsmorgun þegar Eygló fannst rúmlegan orðin temmilega löng og vildi fara framm í skrípóið þá snýr hún sér að pabba sínum og segir "pabbi komdu uppúr" (átti sennilega að vera framúr)
Mars 2009
Eygló vildi horfa á videó einn daginn og bað mömmu sína að setja Pétur Pan og Klobba Kló í tækið. (Kobbi Kló).
Við fórum aðeins niður á bryggju í gær að prufa veiðistangirnar fyrir sumarið. Ekki veiddist nú neitt en Eygló var nú með það alveg á hreinu að við veiddum fullt af rækjum.. (rækjurnar voru beitan sem við vorum með)
Febrúar 2009
Eygló Sunna er kurteis dama. Nökkvi frændi hennar og jafnaldri kom í heimsókn. Hún tók í hönd í hönd Nökkva og sagði með blíðri röddu "Góðan dag Nökkvi og velkominn í húsið okkar". Það vantaði nú bara að hún þéraði frænda sinn.
Febrúar 2009
Thelma er æfa sund og Eygló Sunna var að virða fyrir sér sundfitin hennar. "Haa? Skrýtið..... skrýtin stígvél!"
Janúar 2009
Eygló Sunna var búin að vera í pössun hjá ömmu Sigrúnu og var komin heim aftur. Strunsar að sjónvarpinu og biður mömmu sína um að kveikja á svínadansinum. Mamman kom alveg af fjöllum hvaða svínadans þetta væri og Eygló orðin frekar pirruð á skilningsleysi móður sinnar. Þá kveiknaði alltí einu á perunni, hún var nefninlega að horfa á söngleikinn Grease með ömmu sinni. Grís=svín. Voðalega geta foreldrar verið fattlausir.
Janúar 2009
Við erum að nota 123 kerfið á Eygló Sunnu til að stoppa óæskilega hegðun. Fær 1 og svo 2 og ef hún nær upp í 3 þá er hún sett inn í herbergi í 2 mín.
Við matarborðið í gær var hún alltaf að standa upp í stólnum og pabbi hennar gefur henni fyrstu viðvörun "Eygló þetta er 1!"
Þá heyrist í stuttu " Nei pabbi 4,5,6 og 7 farðu í mömmu holu!"
Þið getið ímyndað ykkur hvað var erfitt að halda andlitinu.
Janúar 2009
Nýjasta sportið hjá Eygló er að kalla á foreldra sína með ákveðnum greini "Pabbinn hvar er mamman?" eða "mamman ég vil mjólk!"
Desember 2008
Eftir kvöldmatinn eitt kvöldið segist Eygló vera búin að borða og þakkar fyrir sig, lítur á hendurnar sínar og sér að þær eru skítugar snýr sér að pabba sínum og segir "pabbi viltu sækja skítapoka" Vildi hún sem sagt að pabbi sinn næði í þvottapoka, en skítapokar koma við sögu þegar hundurinn er búin að gera sín stykki.
Desember 2008
Við höfum verið að reyna að hafa litlu dömuna bleijulausa og fá hana til að pissa í koppinn sinn. Svo einn laugardagsmorguninn gengur hún upp að pabba sínum og spyr hann "pabbi ertu bleijulaus?" Spurning sem er búið að spurja hana nokkuð oft.
Nóvember 2008
Jólsveinarnir eiga hug og hjörtu Eyglóar þenann mánuðinn og koma ansi skemmtileg nöfn á suma þegar hún er að skoða mjólkina á morgnana til dæmis heitir Kertasníkir "Kertasnigill"
Desember 2008
Mamman var að klæða Eygló í buxur einn daginn og stúlkukindin er að vaxa einhver ósköp þessa dagana þannig að buxurnar voru aðeins of stuttar og þá heyrðist í minni " nei mamma ekki þessar buxur, þær eru brotnar."
Desember 2008
Þa
ð er sennilegast ekki rukkaður aðgangseyrir í Hólakirkju, en kannski er það gert í Hjólakirkju. Þegar Eygló syngur Jólasveinar einn og átta þá syngur hún "þá var frítt í Hjólakirkju" (þá var hringt í Hólakirkju).
Nóvember 2008
Eygló er að læra nöfnin á jólasveinunum. Bjúgnakrækir hefur hjá henni nafnið "Dúfnakrækir".
Nóvember 2008
Loppa bættist í fjölskylduna okkar og Eygló var fljót að læra nafnið hennar. Framburðurinn er þó ekki kominn alveg á hreint og hún kallar hana "Floppu".
Nóvember 2008
Eygló er búin að vera lasin með hósta og hor í nös. Svo sat hún í fanginu á pabba sínum og var að bora í nefið og pabbi hennar var að banna henni að bora. Þá snýr hún sér að pabba sínum dregur út puttann og segir "pabbi ojjj græn snudla" (sludda)
Nóvember 2008
Eygló Sunna var eitthvað að lesa yfir Nökkva frænda sínum sem var í heimsókn og gekk á eftir honum og sagði
"Nökkvi Kjartansdóttir!"
Október 2008
Piparkökusöngurinn er stundum sunginn og þá syngur Eygló
"Þegar pikarpökupakast"
Október 2008
Eygló Sunna var eitt sinn búin að leggja herbergið sitt í rúst og mamma kemur inn og spyr hana hver hafi eiginlega draslað svona mikið til. Eygló hugsaði sig um í smá stunda og svaraði svo "Sonja". (Sonja er leikskólakennari á deildinni hennar í leikskólanum).
Október 2008
Þegar einhver hnerrar þá segir Eygló "Guð herbergi" í stað "Guð hjálpi þér".
Október 2008
Janúar 2010
"Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð, um sólina vorið svo verði ég svo góð:"
Janúar 2010
Pabbi Eyglóar var að segja henni söguna um Jóa og baunagrasið. Þegar hann sagði að Jói og mamma hans hafi verið fátæk og ekki einu sinni átt pening fyrir mat sagði Eygló.
"En, þau áttu pítur og hakk".
"Nei, þau áttu ekki einu sinni pítur og hakk heldur bara eina kú sem gaf þeim mjólk. En þau gátu ekki bara drukkið mjólk og því sagði mamma Jóa honum að fara með kúna á markaðinn og selja hana fyrir pening svo þau gætu keypt sér mat."
"Og svo fengu þau sér lasagne," skaut Eygló þá inn í.
Janúar 2010
Eygló Sunna var að syngja lagið um stafrófið og söng.
"L, M, N og einnig P
Ætli skúta standi hjá"
Desember 2009
Við fundum í tiltekt hjá okkur um daginn litla bók þar sem við höfum skrifað niður gullkorn frá Thelmu síðan hún var svona 6 ára eða svo læt þau fylgja hér með.
Thelma við ömmu sína "amma veistu afhverju Olís heitir Olís?"
amma "nei"
Thelma "Nú þeir selja bæði olíu og ís!"
Samtal milli Thelmu og Kjartans.
Thelma: "Kjartan þú ert sko ekki húsbóndinn á þessu heimili"
Kjartan: "nú hver þá?"
Thelma: "nú auðvitað mamma, þú verður sko ekki húsbóninn hér fyrr en þú ert búinn að giftast mömmu minni og fá þér vinnu á Akranesi!"
Thelma að tala við ömmu og afa.
TB: "vitið þið að ég er að venja ömmu Júnu við dýr?"
"nú hvernig?"
"Ég lét hana hafa einn bangsann minn"
Fjölskyldan hélt kósýkvöld með nammi og tilheyrandi. Thelma átti að hjálpa Kjartani að laga til í stofunni.
Thelma:"sko Kjartan minn, ég skal bara gera þetta. Ég get nefninlega skipulagt svona lagað, af því að ég er kona!"
Thelma við Kjartan.
"Kjartan það er dálítið erfitt fyrir þig að passa mig!"
"nú afhverju?"
"Af því að þú ert karlmaður!"
Thelma og Kjartan voru í RVK að leita að ákveðinni dýrabúð og Kjartan biður Thelmu að hafa augun opinn og leita að þessari búð. Eftir smá stund heyrist í Thelmu "Kjartan má ég blikka núna?"
Eygló var eitthvað að ræða við ömmu sína og amman segir að maður verði stundum að anda með nefinu. Þá horfir Eygló á ömmu sína og segir "nei amma ég er ekki með andarunga í nefinu"amma "nei"
Thelma "Nú þeir selja bæði olíu og ís!"
Samtal milli Thelmu og Kjartans.
Thelma: "Kjartan þú ert sko ekki húsbóndinn á þessu heimili"
Kjartan: "nú hver þá?"
Thelma: "nú auðvitað mamma, þú verður sko ekki húsbóninn hér fyrr en þú ert búinn að giftast mömmu minni og fá þér vinnu á Akranesi!"
Thelma að tala við ömmu og afa.
TB: "vitið þið að ég er að venja ömmu Júnu við dýr?"
"nú hvernig?"
"Ég lét hana hafa einn bangsann minn"
Fjölskyldan hélt kósýkvöld með nammi og tilheyrandi. Thelma átti að hjálpa Kjartani að laga til í stofunni.
Thelma:"sko Kjartan minn, ég skal bara gera þetta. Ég get nefninlega skipulagt svona lagað, af því að ég er kona!"
Thelma við Kjartan.
"Kjartan það er dálítið erfitt fyrir þig að passa mig!"
"nú afhverju?"
"Af því að þú ert karlmaður!"
Thelma og Kjartan voru í RVK að leita að ákveðinni dýrabúð og Kjartan biður Thelmu að hafa augun opinn og leita að þessari búð. Eftir smá stund heyrist í Thelmu "Kjartan má ég blikka núna?"
Nóvember 2009
Eygló reynir margt á kvöldin til að sleppa við að fara að sofa. Eitt sem hún reynir mikið er að kalla á foreldra sína til að fá vatnsglas eða pissa. Eitt kvöldið byrjar hún að kalla á pabba sinn, "pabbi ég tíndi klútnum!" pabbinn gaf sig ekki og eftir smá stund heyrðist "pabbi ég tíndi klútnum mínum!" en og aftur sat pabbinn bara fastast á meðan hún kallaði og kallaði. Síðan heyrðist eftir smá stund " Ohhh hann kemur ekki!"
Nóvember 2009
Eygló er að læra faðir vorið á kvöldin og eins og hjá mörgum börnum koma skemmtileg mismæli við lesturinn.
Í staðinn fyrir að segja "Eigi leið þú oss í freistni" kemur hjá Eygló "Eigi leið þú oss í frysti".
október 2009
Eygló Sunna var að fylgjast með þegar Íris Ósk var böðuð. Henni var litið á vatnið og fannst það eitthvað skrýtið á litinn. Mamma hennar útskýrði að það væri olía í vatninu svo Íris yrði mjúk. Þá spurði Eygló "er hún hörð?"
September 2009
Daginn sem Íris Ósk fæddist komu Eygló og Thelma að skoða systur sína á spítalanum. Eygló var nú hálffeimin við þetta allt saman fyrst og var svona að spekúlera í þessu öllu í smá tíma. Svo snéri hún sér að mömmu sinni og sagði "hvað ætlar þú svo að gera við hana?" Held að hún hafi ekki verið alveg tilbúin að taka þetta kríli með sér heim.
Ágúst 2009
Í sextugsafmæli Þóru stjúpömmu sinnar bað Eygló Sunna pabba sinn um "spritt". Þegar kallinn hváði endurtók hún "viltu gefa mér spritt í glas?" og teymdi hann af stað. Þegar stelpuhnátan leiddi pabba sinn að barnum þar sem drykkir lágu kældir í ískari hugleiddi hann hver í andsk. hefði nú verið að kenna stelpunni ný orð og ósiði. Honum til léttis benti hún á tveggja lítra Sprite flösku og hann hellti því glaður í glas handa henni. Við tók svo smá kennslustund um hvernig nafnið á drykknum er borið fram þegar hún lyfti glasinu og sagði hátt og snjallt "meira spritt pabbi!"
Ágúst 2009
Eins og oft er gert á góðviðrisdögum þá var ákveðið að fara í sund núna í vikunni. Fórum við uppá Hlaðir og ákváðum að fara í útiklefana. Sundferðin var fín í alla staði og dró svo sem ekki til tíðinda fyrr en í klefanum þegar við fórum uppúr. Þá hafði komið ein kona þar inn rétt áður en við komum uppúr, kona komin vel á aldur gekk svolítið hokin og fór rólega yfir. Hún var að klára í sturtuni þegar við komum, ég tók eftir því að Eygló varð starsýnt á hana og fylgdist með henni labba út. Þá snýr hún sér að ömmu sinni og segir "amma sástu vondu galdranornina"... Þarna vonaði ég innilega að heyrnin væri farin að gefa sig hjá gömlu konuni þar sem hún var bara rétt farin fyrir hornið, ef ekki að hún hafi að minnsta kosti góðan húmor.
Júlí 2009
Eygló Sunna var að fara að sofa og pabbi hennar segir henni að nú eigi hún að koma og bursta tennurnar. Hún var ekki alveg í rétta skapinu og hleypur frá pabba sínum og kallar "nei nei pabbi það er enginn Baríus og Kaktus í tönnunum mínum"
Júlí 2009
Máltækið að góð saga eigi aldrei að gjalda sannleikans á einkum við um veiðisögur.
Thelma var að dorga niðri á bryggju með afa sínum og Eygló fékk stöngina lánaða hjá Thelmu til að prófa. Planið var að húkka einn af fiskunum sem Thelma hafði veitt á öngulinn hjá Eygló svo lítið bæri á og hún fengi því að "veiða" fiskinn. Það plan breyttist snarlega því í fyrsta kastinu beit fiskur á og upplifun Eyglóar af því að veiða sinn fyrsta fisk varð ekta.
Eins og sannur veiðimaður skreytti Eygló Sunna söguna af veiðinni lítillega þegar hún sagði ömmu sinni frá afrekinu. Sagan hljóðaði svona: "Ég veiddi fisk í sjónum. Svo kom hákarl og át veiðistöngina hennar Thelmu. Þá kom herra Kitli og kitlaði hákarlinn. Svo setti hann púðursykur á hákarlinn og borðaði hann."
Foreldrarnir eru staðráðnir í því að fara að ráði herra Kitla og strá púðursykri á hákarlinn á næsta þorrablóti. Kannski er þá hægt að þræla honum í sig.
Júlí 2009
Eygló barði stöðugt á baðherbergisdyrnar og bað mömmu sína að opna dyrnar. Mamma svaraði "Ég er á klósettinu Eygló, talaðu við pabba þinn". Sú stutta sneri sér til pabba síns og sagði "Pabbi, viltu hjálpa mér að opna dyrnar?"
Júní 2009
Nýjasti frasinn hjá Eygló.
Þegar ég sótti hana á leikskólann í gær sögðu konurnar mér skemmtisögu af henni. Þau voru í útiveru og þar sem þetta var fyrsti leikskóladagurinn hennar eftir vikulöng veikindi héldu þær að hún væri eitthvað þreytt þar sem hún lá fram á borðið úti. Þær settust hjá henni og spurðu hana hvort að hún væri þreytt þá reis hún upp og sagði "nei kannski leiðist mér bara!"
Júní 2009
Veit stundum ekki hvernig krökkum dettur sum orð í hug. Tvennt sem við vitum ekkert hvernig er tilkomið eru eftirfarandi: Eygló teymdi mömmu sína inná bað einn daginn til að fá puff!!! Mamman þurfti að tína dágóðan slatta út úr skápunum þangað til puffið fannst, sem sagt sólarpúðrið sem mamman notar. Svo vorum við einn daginn hjá ömmu og afa á Háteignum þegar Eygló opnar frystiskápinn og bað ömmu sína um grjót!!! Hún var nú ekki lengi að finna það í frystinum hjá ömmu, en grjótið var sem sagt Sun Lolly klaki.... Blessuð börnin...
Maí 2009
Eygló elskar að horfa á myndina Litla hafmeyjan og leikur líka stundum hafmeyju í baði. En kannski það skemmtilegasta er að hún er farin að hafa eftir nokkra frasa úr myndini. Til dæmis ef hún fer í fýlu þá fer hún út í horn eða uppí sófa og tilkynnir okkur að hún sé "prinsessan af hallæri"
Apríl 2009
Eygló Sunna var í sturtu með pabba sínum og spurði hann hvort hann vildi vera kona! (af því að hann var að nota sjampó í hárið á sér).
Apríl 2009
Stundum ruglast maður aðeins þegar maður er 2 ára að æfa sig að tala. Einn sunnudagsmorgun þegar Eygló fannst rúmlegan orðin temmilega löng og vildi fara framm í skrípóið þá snýr hún sér að pabba sínum og segir "pabbi komdu uppúr" (átti sennilega að vera framúr)
Mars 2009
Eygló vildi horfa á videó einn daginn og bað mömmu sína að setja Pétur Pan og Klobba Kló í tækið. (Kobbi Kló).
Við fórum aðeins niður á bryggju í gær að prufa veiðistangirnar fyrir sumarið. Ekki veiddist nú neitt en Eygló var nú með það alveg á hreinu að við veiddum fullt af rækjum.. (rækjurnar voru beitan sem við vorum með)
Febrúar 2009
Eygló Sunna er kurteis dama. Nökkvi frændi hennar og jafnaldri kom í heimsókn. Hún tók í hönd í hönd Nökkva og sagði með blíðri röddu "Góðan dag Nökkvi og velkominn í húsið okkar". Það vantaði nú bara að hún þéraði frænda sinn.
Febrúar 2009
Thelma er æfa sund og Eygló Sunna var að virða fyrir sér sundfitin hennar. "Haa? Skrýtið..... skrýtin stígvél!"
Janúar 2009
Eygló Sunna var búin að vera í pössun hjá ömmu Sigrúnu og var komin heim aftur. Strunsar að sjónvarpinu og biður mömmu sína um að kveikja á svínadansinum. Mamman kom alveg af fjöllum hvaða svínadans þetta væri og Eygló orðin frekar pirruð á skilningsleysi móður sinnar. Þá kveiknaði alltí einu á perunni, hún var nefninlega að horfa á söngleikinn Grease með ömmu sinni. Grís=svín. Voðalega geta foreldrar verið fattlausir.
Janúar 2009
Við erum að nota 123 kerfið á Eygló Sunnu til að stoppa óæskilega hegðun. Fær 1 og svo 2 og ef hún nær upp í 3 þá er hún sett inn í herbergi í 2 mín.
Við matarborðið í gær var hún alltaf að standa upp í stólnum og pabbi hennar gefur henni fyrstu viðvörun "Eygló þetta er 1!"
Þá heyrist í stuttu " Nei pabbi 4,5,6 og 7 farðu í mömmu holu!"
Þið getið ímyndað ykkur hvað var erfitt að halda andlitinu.
Janúar 2009
Nýjasta sportið hjá Eygló er að kalla á foreldra sína með ákveðnum greini "Pabbinn hvar er mamman?" eða "mamman ég vil mjólk!"
Desember 2008
Eftir kvöldmatinn eitt kvöldið segist Eygló vera búin að borða og þakkar fyrir sig, lítur á hendurnar sínar og sér að þær eru skítugar snýr sér að pabba sínum og segir "pabbi viltu sækja skítapoka" Vildi hún sem sagt að pabbi sinn næði í þvottapoka, en skítapokar koma við sögu þegar hundurinn er búin að gera sín stykki.
Desember 2008
Við höfum verið að reyna að hafa litlu dömuna bleijulausa og fá hana til að pissa í koppinn sinn. Svo einn laugardagsmorguninn gengur hún upp að pabba sínum og spyr hann "pabbi ertu bleijulaus?" Spurning sem er búið að spurja hana nokkuð oft.
Nóvember 2008
Jólsveinarnir eiga hug og hjörtu Eyglóar þenann mánuðinn og koma ansi skemmtileg nöfn á suma þegar hún er að skoða mjólkina á morgnana til dæmis heitir Kertasníkir "Kertasnigill"
Desember 2008
Mamman var að klæða Eygló í buxur einn daginn og stúlkukindin er að vaxa einhver ósköp þessa dagana þannig að buxurnar voru aðeins of stuttar og þá heyrðist í minni " nei mamma ekki þessar buxur, þær eru brotnar."
Desember 2008
Þa
Eygló er að læra nöfnin á jólasveinunum. Bjúgnakrækir hefur hjá henni nafnið "Dúfnakrækir".
Nóvember 2008
Loppa bættist í fjölskylduna okkar og Eygló var fljót að læra nafnið hennar. Framburðurinn er þó ekki kominn alveg á hreint og hún kallar hana "Floppu".
Nóvember 2008
Eygló er búin að vera lasin með hósta og hor í nös. Svo sat hún í fanginu á pabba sínum og var að bora í nefið og pabbi hennar var að banna henni að bora. Þá snýr hún sér að pabba sínum dregur út puttann og segir "pabbi ojjj græn snudla" (sludda)
Nóvember 2008
Eygló Sunna var eitthvað að lesa yfir Nökkva frænda sínum sem var í heimsókn og gekk á eftir honum og sagði
"Nökkvi Kjartansdóttir!"
Október 2008
Piparkökusöngurinn er stundum sunginn og þá syngur Eygló
"Þegar pikarpökupakast"
Október 2008
Eygló Sunna var eitt sinn búin að leggja herbergið sitt í rúst og mamma kemur inn og spyr hana hver hafi eiginlega draslað svona mikið til. Eygló hugsaði sig um í smá stunda og svaraði svo "Sonja". (Sonja er leikskólakennari á deildinni hennar í leikskólanum).
Október 2008
Þegar einhver hnerrar þá segir Eygló "Guð herbergi" í stað "Guð hjálpi þér".
Október 2008
Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 9
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 72007
Samtals gestir: 22945
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:48:59



